05ágúst
Bara allt að gerast á hjá mér í blogginu!!!
...jæja nú er kominn águst á það þýðir að skólinn byrjar í þessum mánuðni:(....
ég er bara búin að vera í vinnunni upp á landspítala í sumar. fór á bíladaga..og svo fór ég í gær upp í húsafell til mömmu og pabba sigurþórs og ömmu hans og afa á davið þór bróðir hans....:P bara mjög næs...og ég er í vinnunni núna og fer aftur upp í húsafell eftir vinnu...ég og sigurþór förum svo til london 7 september að sjá sting and the police !!! vúhúúú ég hlakka til!!! en ég hlakka líka miiiikið til þegar ólöf kemur frá danmörku!!!! en heyrru ég lofa að setja inn myndir frá bíladögum og frá húsafelli á næstunni...þegar ég fer í mína eigin tölvu:D....kannski verð ég duglegri að skifa blogg...andrei að vita...
15mars
jæjja.......
nú brýt ég blað í blogg heim Helgu með því að SKRIFA BLOGG...loksins.....
það hefur bara verið svooo margt anað að gerast í mínu lífi núna undan farið.....;O)....
ég skal bara orða þetta svona: hugur minn hefur ekki beint verið í blogg stuði.... ;P
en allavega....það sem ég er búin að verað gera:
vera í skólanum og allt sem honum fylgir, vinna í garðheimum, hreyfingu og landspítalanum er sem sagt byrjuð í verknámi á hjarta og lungaskurðdeild og legudeild augnsjúklinga....mjög gaman!...síðan fór ég í "afmælis" party Siguþórs, mjöög gaman!! :), fór á Árshátið FB núna 8.mars...það var ekkert svo gaman...jújú fyrst allt í lagi en já...tónlistin var mér ekki að skapi....þannig Sigurþór var svo sætur að koma allaleið á Selfoss og ná í mig og Karen :0)
svo á Halli afmæli í dag og er 50 ára gamall!!!....til hamingju með það....efast um að hann eigi eftir að lesa þetta :P
jæja....ég ætla að setja myndinar frá Árshátíðinni inn á síðuna!.....ég veit það er alltaf mynd af sama fólkinu og ég veit að myndirnar eru ekki margar en svona er þetta...betra er að hafa fáar myndir af fallegu, skemmtilegu og æðislegu fólki í stað þess að hafa margar myndir af ljótu og leiðinlegu fólki heheh segi svona....
allavega...allir að skoða myndinar og kvitta hér takk!....af því ég var svo ROSA dugleg skrifa blogg LOKSINS!!:p
SÍJA!
12febrúar
hæhæ ég er ekki dauð, neibb!!!
helgin:
föstudagur:
fór niður í bæ að djamma!! rosa stuð, þrátt fyrir að ég var hálf veik eitthvað....
laugardagur:
ætlaði ekki að djamma!! var veik!!...en neiiiii...þegar ýmslegt skemmtilegt fólk byður mann að koma þá getur maður nú ekki sagt nei... ;)
sunnudagur:
læra læra læra.........slöpp.....
mánudagur:
æltaði í próf í morgun....en neibb....leið mjög illa og bara meikaði ekki að fara í prófið.....:S...hefði fengið 2 af því ég gat ekki hugsað.....og er orðin skíthrædd um að ég sé bara að fá lungabolgu eða eithvað er svo illt í lungumum :S...en fer á eftir og læt doksa kíkja á mig :P....
þar sem ég er búin að vera fáránlega mikið veik núna síðasta mánuðinn þá finnst mér bara allveg sanngjant að ég verði bara ekkert veik næstu mánuðina!! er komin með ógeð af veikindum!!!!
annars er bara allt gott að frétta af mér!!:D
heyrumst síðar!!Bæjó
31janúar
hæhæ,
var að klára að læra...veiiii búin með miklu meira en ég ætlaði mér:D...dulleg stelpa....
ég horfði á seinni hálfleik áðan...ætla ekki að tjá mig frekar um það......
um helgina fer ég í sumarbústað....fjör!
ég fór á köld slóð með fjölskylduni um dagnnn...mjög góð mynd...eins og ég sagði eftir myndina:
fyrri hálfleikur var ekki eins góður og sá seinni heheheh ein föst í handboltanum :P
margt skeði um helgina...
slæmt :S.....og gott :)....
ætli ég segi ekki bara: helgiin var ekki eins og hún var plönuð....
en ég var að spá....það vantar nýjan lukkunarpamfíl...
ef þið óskið eftir því að vera lukkunarpamíll síðunnar þá endilega skrifa það í komment!!!
bæjó! og Góða nótt!
24janúar
hæhæ,
ætla hafa þetta stutt þar sem ég er að DREPAST í maganum með fkn ælupest....bjakk!!!
vona bara að leikurinn á eftir bjargi deginum!!!!!!!!!!
úfff það er eins gott, annars verð ég bara veik þangað til í sumar.....
kvittiði nú!!!!
p.s. þegar nördinn kemur yfir hana þá þarf hún svo ég sletti space hahhaha
hey! ætla setja söguna á bak við þessa setningu inn í -gullkorn- tjekkið á því og segið ykkar skoðun!
bæjó
23janúar
vúhúúúúúú
var að horfa á leikinn.....djöfull er maður stoltur íslendingur núna!!! :D:D snilld!!
en já um helgina var gert eftirfarandi:
fösudagur:
var að vinna og fór svo upp í kjós og fékk þá þau tíðindi að pjakkur gamli hafði dáið! :,(...pabbi bakkaði óvart á hann og annan hund,hinn hundurinn dó strax en pjakkur gamli lét ekki segjast og þurfti nokkrar kúlur áður en hann hvaddi okkur og sofnaði svefninum eilífa :,(......svona gerast slisin....
en úr leiðinlegu í skemmtilegt....
laugardagur:
þorrablótsdagurinn ! :D
ég og tinna skelltum okkur að snjóþotu:) hihi og fórum síðan á þorrablót um kvöldið og það var rosa stuð!
sunnudagur:
jámm þynnkan var mætt á svæðið og fór ekkert nema bara rétt áðan :S...
var heima hjá ólöfu og horfði á leikinn....
mánudagur:
skóli.....sund....leikurinn!!! VÚHÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚ!!!!!!!!!!!!!!!! ELSKA LANDSLIÐIÐ!!! :D
er svo að fara að þýfa bílinn þótt ótrúlget sé satt!!!!
sé ykkur bæjó!!!
16janúar
hæhæ
undan farna daga er ég ekki búin að gera neitt mikið...
fór upp í kjós um helgina og var að gera þetta:
vélsleða, vélsleða og vélsleða, gefa kindunum, hestunum og því öllu liði ;)....svo bara læra og sofa...
oog í dag þá var ég í skólanum frá átta til fjögur...skundaði síðan með Karen í Hreyfingu sótti um vinnu og fékk vinnu :) mega mega...síðan fór ég að kaupa bæs og olíu og pensla og sandpappír...er að gera herbregið mitt fínt og kósí og þarf þess vegna að bæsa skrifborðið og hillurnar:)
og já Tinna og Jói komu heim fá Kúbu síðustu nótt:D VELKOMIN HEIM!!
heyrumst síðar...bæjó
10janúar
hæhæ
hvað er málið með að fullt af fólki er búið að skoða myndirnar en enginn skrifa comment!!! tsssss....
en jámm...
í gær keypti ég mér 2 peysur 2 buxur 1 skó 1 húfu og leðurhanska :D jejjjj
ólöf kom með mér í gyllta köttinn og hjálpaði mér að velja skónna húfuna og vettlingana:) svo voru einar og emil þarna eitthverstaðar líka :P síðan fór ég heim til ólafar og rósa litaði á mér hárið....soldið dökkt:S en það venst :) síðan gysti ég hjá ólöfu...rosa stuð....
ég fór í morgun upp í vinnu (geislabaug) til að kveðja alla :,(...af því ég er hætt...gaf krökkunum sápukúlur í kveðjugjöf....ég sagði þeim að núna væri ég hætt af því ég væri að fara í skólann og einn strákurinn botnaði ekkert í þessu og sagði: þú þarft ekkert að fara í annan skólann, af hverju geturu ekki bara verið í leik-SKÓLANUM??
fór síðan í skólann í EINN tíma:D:D:D vei vei....féll annar niður...
oooog núna sit ég hér í apsafelli og er að fara bráðum í sund að synda og svo að elda fisk handa litla bróðir!!!.....hehe sorglegt
sí ja bæjó
08janúar
hæhæ
Gleðilegt nýtt ár!!! :D
nýjar myndir eru komnar inn úr áramótaparty-inu:)
ég fékk myndavél í afmælisgjöf og er því alltaf að taka myndir
en jamm í jólagjöf fékk ég margt sniðugt og skemmtilegt 
þar á meðal:
myndavél, náttföt, bol, krem, gitar tuner, lóð svona lyftingar lóð ekki land
, disk, bangsa, bók...oog eitthvað fleyra, allt mjög flott og æðislegt.
það sem ég er búin að verað gera er bara þetta venjulega, veislur, vinna og halda áramótaparty...
mjööög skemmtilegt og heppnaðist bara ágætlega....flest allir mjög ánægðir að minnsta kosti...
bollan kláraðist, en mikið er þó eftir að víni frá gestum partysins...og ég nenni ekki að verað hringja í fólk til að minna á að ná í búsið sitt...heldur drekk ég það bara ef enginn hefur náð í það innan 2 mánaða eða svo :P hehe....kosturinn við að halda party ;P
en já ég var að klára að taka niður jólaskraut og áramótaskraut....oog núna eru bara jólin búin og skóli á morgun....ég er nú pínu fegin ef ég á að segja allveg eins og er....
í gær fór ég á þretánda brennu upp í kjós og var það bara mjög fínt, eftir brennuna fór ég með guðna frænda einsa bróðir tóta vin og helgu sjálfum mér niður í bústað til guðna að spila mattador:P hihi
endilega kommentið myndirnar!!!!!!!!!!!!!!!! (þær eru inn í -fleyri myndir-)
bæjó
24desember
hæhæ
vildi bara segja:
GLEÐILEG JÓL OG FARSÆLT KOMANDI ÁR, TAKK FYRIR ALLT GAMALT OG GOTT
hittumst hress og kát á nýju ári!
kv.Helga