25júlí
hæhæ,
úffff harðsperrur...var að slá garðinn með orfi í gær...og raka siðan...djöffull er það samt eitthvað gaman svona í sól og blíðu:D góð líkamsrækt og brúnka, allt í sama pakkanum ;)
jájá...er ekki búin að vera að gera neitt merkilegt....er að fara núna út og klára að raka garðinn...og svo ætla ég að fara að klippa tré oooog svo fara að vinna í kaffi kjós klukkan fjögur til átta...rosa stuð alltaf hreint;P...
heyri í ykkur seinna meir bæjó:)
23júlí
hæhæ, er ekkert búin að skrifa af því ég er að vinna upp í kjós og enginn tími til að fara á netið...þar sem ég er í smá pásu núna þá ákvað ég að setja inn pínu færlu en ekki langa því pásuna ætla ég að nýta í það skella mér á hestbak....þannig...merkilegt sem búið er að gerast er eila ekki neitt,,er búin að fara nokkrum sinnum út á bát....djammaði á laugardaginn upp í kjós með frændfólki:P gjeggjað stuð!....vinna í kaffi kjós...fór í tívolíið í gær með einsa davíð guðna og emil...gjeggjað stuð!!...oooog eigilega ekkert meir bara....vildi bara svona láta vita að þessi síða er enn í gangi, þó ekki fullum gangi en í gangi;),,,heyri í ykkur bæjó :)
18júlí
hæhæ, langt síðan ég skrifaði...nenni ekki að skrifa neitt núna...og hef ekki tíma er upp í kjós að vinna....eeeen annars það helsta sem gerst hefur er:
á föstudaginn þá fékk ég viðbjóðslegan magaverk í vinnunni gat ekkert hreyft mig og var að KÁLAST það endaði með því að hringt var á sjúkrabíl og brunað með mig upp á spítala...þetta reyndist vera blaðra á eggjastokk að springa
...viðbjóður....en ég fór nú samt í party eftir þetta um kvöldið...starfsmannaparty...rosastuð..
laugardagur fór ég upp í kjós og tjillaði eitthvað...
sunnudagur, ég einsi davíð og guðni fórum út á bát og veiddum allveg slatta:D...
mánudagur...var að vinna eitthvað og eitthvað dæmi hérna upp í kjós...svo næstu helgi er ég að fara í river rafting með karen ingó ingu og alex og kannski einsa og kannski fleyrum...gaman gaman...svo stittist í þjóðhátið í eyjum:D vúhúú,,,Ég, Davíð og Tinna ætlum að skella okkur :) jibbí stuð!...heyri í ykkur seinna meir....bæjóbbs
13júlí
hæhæ
var að koma inn, var í háskalegri "sjó" ferð :P hihi
er upp í kjós og það kom svona leikjarnámskeið og leigði hjólabátana hjá okkur...svo var ég og einar bróðir fengin í það að færa hjólabátana á eitthven stað...sem sagt við þurftum að hjóla þeim slatta langt til krakkana...þetta var allt í gúddí fyrst síðan þegar við vorum komin soldið langt þá voru öldurnar byrjaðiar að vera frekar stórar og gusuðust yfir okkur og oní bátinn...ég hló svo mikið að ég gat ekkert hjólað hehehehe síðan skildilega föttum við að báturinn er fullur af vatni! og byrjar að sökkva og við bara jæja við sitjum í vatni best að drulla sér úr bátnum...við vorum að frekar grunnum stað þannig við hoppuðum bara útí og vatnið náði okkur svona upp að mjöðm eða aðeins hærra...brrr pínu kalt en þetta var bara svooo findið og sérstakelga þegar einar ætlaði að vera rosa kúl og hoppa úr bátnum og rann og datt beint oní vatnið hahahaha:D....svo ákváðum við að það væri alllt of vont veður til þess að litlir krakkar gætu farið að hjóla þannig við þurftum að fara til baka...ég var komin hálfa leið með að ýta bátnum þá kemur pabbi með kerru....meiri kellingin að ná í kerru! nei segi svona:P en jájá...þetta var stuð...
...úr einu í annað....
ég keypti mér miða til eyja í dag!!! vúhúúú:D
djöfull hlakkar mig til!!!....
tinna systir ætlar að koma með mér :) og svo fara eitthverjir frá kjaló líka
en er farin núna í HEITA sturtu :D mmmmmm... ;)
heyri í ykkur seinna meir, bæjó !
11júlí
hæhæ, ég gat sko aldeilis ekki farið að sofa í gær! tssss....var ný búin að skifa bloggið, komin upp í rúm og var allvega að fara að fara að sofna...þegar síminn hringir...þá er það jóhann bróðir mömmu, hann var að byðja mig um að koma og opna íbúðina hennar ömmu af því ég er víst sú eina sem er með lykla af þessari íbúð, amma er ekki heima sko. síðan fatta ég að EINAR týndi mínum lyklum þannig ég fór að leita og leita og fann fyrir rest lykla frá tinnu fór og opnaði fyrir honum af því allt var víst á floti hjá gömlu. vaskurinn lak...þannig ég var allveg til hálf eitt að vinda handklæði og fl. síðan kom ég heim og STEIN rotaðist :D mmmmm það var gott:P svo er víst tinna systir að koma heim í dag úr hestaferð

og eg ætla að taka til í íbúðinni og skúra og gera allt glansandi fínt þegar hún kemur

jæja það sem gerist á næstunni er að það er vinnuparty nei fyrirgefið það er vinnu samkunda! á föstudaginn!...af því þá er komið sumarfrí

en engin sól reyndar

...en samt frí

hihi aðeins að missa mig í köllunum :P ekki kallamálum bara köllunum á bloggar.is....ekki það að ég sé að reyna neitt við þá sko, þó þeir séu nú samt soldið sætir þessu litlu broskalla hihi

sérstaklega þessi ...en hahaha findið nafn sem þeim er gefið hér á síðunni : tilfiningatákn hehe skondið en ég kýs nú heldur að kalla þá litu sætu broskalla þó þeir séu reyndar ekki allir brosandi oki ég er hætt þessu tauti núna og ætla að skella mér í heimilisverkin.....eg er að verða eins og gömul einsetu kelling sem tautar við sjalfan sig hehe er alltaf ein hérna eitthvað að einhverfast og að skifa svona blogg er nú eigilega svona svipað og að tala við sjálfan sig nema að maður talar ekki heldur skifar og reyndar þá getur hver sem er séð það sem maður var að tauta já oki nú er ég allveg búin að missa mig í pælingunum....er í svona pælingastuði núna.... gæti haldið áfaram með ýmislegt eeeen verð að þjóta og taka til sí jú sún bæjó
p.s. ólöf þú lofar að commenta, af því ég var sérstaklega að gera svona langt blogg fyrir ÞIG, af því þú baðst um það um daginn....þannig ég segi bara vonandi hafðuru gaman af þessu, sma svona pælingar í vinnuni en ekki gleyma þér samt, þú ert í vinnuni og haltu núna áfram að VINNA og ekki láta mig trufla þig ;) bæjó :*
11júlí
Hellú, úff...ég sofnaði kl: hálf sex í nótt :S....var gjörsamlega andvaka...ömurlegt...en ég hef ekkert sofið síðan ég vaknaði í morgun...sem er fínt af því ég ætla ekki að fara að snúa sólarhringnum við!! til að halda mér vakandi þá....fór ég beint eftir vinnu og keypti mér :
reiðskálmar
stígvél...spari sko...
oooog...undirföt :P...þetta kostaði sko sitt!! úff...en allt í lagi helmingurinn var afmælispeningur frá múttu og pabba og ömmu og afa og eitthvað:D
síðan þegar heim var komið...þa var aðeins tjillað og fór svo í skokk gallann minn og hljóp út í sund og sinti eitthvern slatta...rölti svo til bara fór út í 11-11 og keypti mér döðlur, banana og epli. kom heim skar þetta niður og sit núna við tölvuna að borða þetta og drekka vatn...ahhh svo gott að geta étið svona góðan mat en vitað samt að hann er hollur ;P
ooog núna er ég allveg að drepast úr þreitu...er að spá að fara bara upp í rúm að leggja mig von bráðar...búin að bíða eftir að geta sofið í allan dag...! og þá er líka eins gott að ég geti sofnað!!
bæjó.
10júlí
hæhæ,
ætla bara aðeins og prófa að hafa þessa síðu og athuga hvað mér og öðrum finnst...er komin með soldið leið á fólk.is....hún er eitthvað svo gamaldags...ekki nógu kúl!!! hihi
...neinei hún er með sína kosti....og galla....nú segið þið mér,bæði í könnuninni og í commentum hvor síðuna ég á að hafa....ég ætla að færa allt inn á þessa síðu sem var á hinni...kannski ætti ég að setja eitthvað nýtt inn....?????
sé ykkur bæjó....
já ég veit að kl er þrjú um nótt...ég bara meikaði ekki að sofa...svaf svo lengi í dag hihihi:P en ætla að sofa núna góða nótt